Hellú 
Jæja þá er maður kominn til ástralallalíu
Ferðalagið gekk rosavel og ekkert smá gaman að hafa Birnu og Árna sem ferðafélaga
Munaði öllu að hafa félagsskap
Það er doldið næs að vera komin í hitann... ahh fór frá því að hlaupa útí bíl, skafa og bíða eftir að bíllinn hitni, yfir í að setja bílinn í gang til að kæla hann... frekar næs. Ég var ekki búin að skrifa neina færslu frá því ég kom útaf ég er búin að vera á fullu að kaupa jólagjafirnar sem ég ætlaði að senda heim... en það er allt orðið klárt og búin að senda
En annars er nýja húsið æðislegt... ekkert smá gott að vera hérna. Það er svo krúttlegt það eru fuglar hérna sem setjast alltaf á gluggasyllurnar og syngja fyrir okkur... við gefum þeim alltaf kjöthakk... haha þeir elska það, og svo borða þeir það bara úr höndunum á okkur, ekkert smá spakir
Svo á kvöldin láta froskarnir allir sjá sig, það var svo fyndið þegar ég og sara fórum að ná í takeaway og bökkuðum úr innkeyrslunni, þá lýsti ljósið á bílnum yfir grasið og VÁ það var allt morandi í froskum ! Ég sá allaveganna 10 froska.. ábyggilega miklu fleiri þar sem maður sér ekki
haha eins gott að vera ekkert að labba á grasinu á kvöldin.. vil ekki lenda í því að stíga á einn eins og Aron minn gerði
Það er allaveganna allt morandi í dýralífi hérna
Mamma og sara sáu líka um daginn ref hlaupa yfir götuna.. sonna ref eins og í teiknimyndunum
Ýkt krúttaralegt 
Vá hvað það er samt gaman að hitta familíuna mína attur... og ómægod hvað Layla er sæt !! Hún er algert æði ! Þegar hún sá mig í fyrsta sinn þá fékk ég líka þetta risabros frá henni
híhí, æðislegt! Hún tekur mér rosalega vel, sem betur fer! ohh það hefði verið doldið erfitt ef hún hefði ekki viljað vera hjá manni
Í gær fórum við svo öll útað borða, það var sonna jólaútaðborða hjá vinnunni hans pabba og ég fékk að sníkja mér með
Það var rosalega gaman ! Er doldið þunn núna, en maður gleymir því í góða veðrinu
En ég ætlaði nú bara að gefa ykkur smá update hérna megin
Ég ætla líka svo að taka myndir og vera dugleg að setja inná myndasíðu sem ég er búin að stofna
Set linkinn inná þegar hún verður reddí
Endilega verið duglegar stelpur að skrifa inná og leyfa mér að fylgjast með ykkur
Bið að heilsa í bili
Bleeeesss 
Alma 